AGS, Ályktanir, Alþjóðamál, Andófshreyfingar, Attac, Auðlindir, Evrópusambandið, Ísland, Fundir, Menning, Sagan, Ræður

Sýrland og Íran eru peð í tafli um heimsyfirráð

443px-Coat_of_arms_of_Syria.svg_.png

1. Brennuvargar þinga um brunavarnir

Enn og aftur gerist það: Blóðug uppreisn studd af vestrænum stórveldum er notuð af þeim sjálfum sem tilefni til íhlutunar í viðkomandi land. Mikil diplómatísk herferð er nú farin gegn Sýrlandi, afar lík þeirri sem var undanfari árásarinnar á Líbíu í fyrra. Þann 30. júní var ráðstefna í Genf og önnur í París 6. júlí til að beita Sýrlandsstjórn þrýstingi. Frú Clinton beindi spjótum að Rússum og Kínverjum fyrir að vinna gegn herferðinni og hótaði að "þeir muni gjalda fyrir þetta".

Yfirlýsing Herferðarinnar fyrir endurskoðun grískra skulda, 13. febrúar 2012.

I will survive

Hinn nýi Alþjóðlegi samningur og minnisblaðið (The International treaty and Memorandum) sem fylgja "klippingunni" á grískum ríkisskuldum, ýta grísku þjóðinni lengra inná braut örbirgðar. Í honum felst gríðarlegt hrun á öllum lífskjörum sem og aðstæðum á vinnumarkaði, og þrældómur hjá lánadrottnum ríkisins. Skerðing á lífeyri og tekjum, afnám samningsréttar verkalýðsfélaga (sem gengur þvert á 22. grein grísku stjórnarskárinnar) og uppsagnir 150.000 opinberra starfsmanna munu leiða til hungurs og fátæktar. Atvinnuleysi, sem er nú þegar í sögulegu hámarki, mun verða 30%. Grimmilegur niðuskurður á félagslegum útgjöldum, sérstaklega í heilbrigðismálum, lækkar lífslíkur og eykur líkur á ungbarnadauða. Nýjar tilraunir til einkavæðingar afhenda stórfyrirtækjum þjóðarauðæfi og koma með því í veg fyrir að komandi kynslóðir geti notið tekna af þeim. Lög frá Englandi og Lúxemborg ná yfir nýju ríkisskuldabréfin ( 13. grein nýja samningsins) sem er bæði móðgandi og niðurlægjandi fyrir fullvalda ríki, auk þess sem greinin kemur á raunverulegri fangelsun heillar þjóðar, þar sem að með henni er komið í veg fyrir að hægt verði að semja uppá nýtt um skuldirnar. Einnig verndar 13. greinin skuldadrottna okkar þegar að því kemur að Grikkland á endanum yfirgefur evrusvæðið.

Skýrsla stjórnar Attac

RTEmagicC_Kanzleramt_01.jpg.jpg

Skýrsla stjórnar Attac, flutt á aðalfundi Íslandsdeildar samtakanna, þann 26. nóvember, 2011.

Kæru fundargestir, velkomin.

Síðasti aðalfundur Attac var haldinn 14. nóvember, fyrir rúmu ári, í Reykjavíkurakademíunni.

Þá var fyrsta stjórn samtakanna endurkjörin, í henni sátu: Gunnar Skúli Ármannsson, Árni Daníel Júlíusson, Bjarni Guðbjörnsson, Einar Már Guðmundsson, Salvör Gissurardóttir, Sigurlaug Ragnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir.

Inside Job

 

FRÁSÖGN FRÁ FERÐ TIL MADRIDAR 7-9 OKT 2011

gsa 3 -.jpg

Living in debtocracy.

Debt in the North: Learning from the South

7th and 8th October in Madrid

Hvernig er hægt að breyta ríkjandi þjóðskipulagi kapítalismans?

kapítalistinn.png

I Kapítalisminn: Horft um öxl

Attac hreyfingin starfar nú í yfir 40 löndum um allan heim. Samtökin vinna við að hugsa upp sterka sameiginlega valkosti við núverandi þjóðfélagsástand og skipuleggja aðgerðir og mótmæli gegn ríkjandi kerfi. Síðan Attac samtökin voru stofnuð í lok tíunda áratugarins hafa þau unnið gegn þeirri hugsun að valkostir við ríkjandi þjóðfélagskerfi nýfrjálshyggjunnar séu óhugsandi.

Tilkynning frá 15. októberhreyfingunni

15.okt_.jpg

Mótmæli gegn fjármálaveldi og alvöru lýðræðis krafist í 662 borgum í 79 löndum.

Laugardaginn 15. október kl. 15 er boðað til aðgerða, Tökum torgin, hér í Reykjavík. Ætlunin er að koma saman á Lækjartorgi og láta í ljós andstöðu við fjármálavaldið og krefjast alvöru lýðræðis, eins og gert verður um allan heim þennan dag. Samskonar aðgerðir hafa verið boðaðar í 662 borgum í 79 löndum um allan heim. Hér á eftir fylgir í íslenskri þýðingu ákall þeirrar alheimssamstöðu sem myndast hefur á örskömmum tíma gegn fjármálavaldinu og fyrir alvöru lýðræði.

Syndicate content