Málþing 3. maí: Guli borðinn – rétturinn til að mótmæla

Þing í máli og myndum á alþjóðadegi tjáningarfrelsis 3. maí

Þriðjudaginn 3. maí næstkomandi mun landsnefnd Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), í samráði við Blaðamannafélag Íslands og Mannréttindaskrifstofu Íslands standa fyrir málþinginginu:

Guli borðinn – rétturinn til að mótmæla

Málþingið verður haldið í Bíó Paradís við Hverfisgötu og stendur frá 14-17.

Landskunnir einstaklingar munu flytja framsögu eða taka þátt í pallborði á ráðstefnunni.

Frummælendur:

  • Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við HÍ
  • Sólveig Jónsdóttir, leikskólaleiðbeinandi og ein af níu mótmælendum sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi
  • Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins og
  • Haukur Már Helgason, skáld, kvikmyndagerðarmaður og heimspekingur.

Þátttakendur í pallborði, auk frummælenda:

  • Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands og
  • Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu.

Sýnd verða brot úr tveimur nýjum íslenskum heimildamyndum á vinnslustigi sem báðar verða frumsýndar síðar á þessu ári:

Tökum málin í okkar hendur – heimildamynd Önnu Þórsdóttur, meistaranema í þjóðfræði við HÍ, um aktívisma á Íslandi

Ge9n – heimildamynd Hauks Más Helgasonar, skálds og heimspekings, um mál níumenninganna sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi.

Markmiðið með málþinginu er að efna til gagnrýninnar og uppbyggilegrar umræðu um mótmælaréttinn. Tilefnið er sú hreyfing sem mótmælin veturinn 2008 til 2009 kom á samfélagið og dómurinn í máli níumenninganna sem féll fyrr á þessu ári. Íslenskt samfélag stendur á krossgötum í kjölfar dómsmálsins. Því er mikilvægt að staldra við, kryfja málið allt og horfa um leið til framtíðar og þess samfélags sem við viljum byggja. Sömuleiðis er ætlunin að staðsetja þessi umbrot á Íslandi í stærra samhengi tjáningarfrelsis, mótmæla, valdstjórnar og þjóðfélagsumbrota í heiminum á okkar dögum.

Þetta þing í máli og myndum er hið fyrsta i röð málþinga sem íslenska Unesco nefndin mun standa fyrir tvisvar á ári næstu árin. Ætlunin er að taka á þeim til umfjöllunar helstu málefnasvið Unesco. Unesco fer meðal annars með málefni tjáningarfrelsis innan Sameinuðu þjóðanna, en rétturinn til að mótmæla er veigamikil stoð tjáningarfrelsisins.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.