Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttatilkynningar (íslenska)
Íslenska

Fjárfestingasjóður í anda nýfrjálshyggju

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Á stjórnarfundi Attac á Íslandi sem haldinn var 8. desember var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Attac á Íslandi lýsir furðu sinni á því hvernig Landssamtök lífeyrissjóða standa nú að stofnun fjárfestingarsjóðs og hyggjast  ráðskast með 30 milljarða af sparifé landsmanna  í áhættufjárfestingar í anda nýfrjálshyggju  án þess að gegnsæi og upplýst samfélagsumræða sé um hvernig standa eigi að þeim fjárfestingum. Þá vekur furðu að í  stjórn hins nýja fjárfestingarsjóðs lífeyrissjóðanna er valið  fólk sem tengist hinum föllnu útrásarfyrirtækjum s.s. Guðfinna S. Bjarnadóttir sem bæði sat í stjórn Baugs og  FL group.

Attac telur brýnt  að endurreisa þau samfélög sem rústað hefur verið fyrir tilstilli óheftrar markaðshyggju. Til þess verður að setja bönd á fjármálastarfsemi, skattleggja hana í þágu félagslegs jafnréttis og setja verður samfélögum ný markmið í anda lýðræðis- og velferðarsamfélaga, þar sem manngildi og gegnsæi verði í hávegum höfð.
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 10 Desember 2009 14:28 )
 



Fréttaskot

Fyrirlestur Viðars Þorsteinssonar sem átti að vera í fundaröð Attac á Íslandi um einkvæðingu, markaðsvæðingu og hnattvæðingu verður ekki í kvöld. Ný tímasetning verður ákveðin síðar.

 Attac á Íslandi