Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttir
The News

Skýrsla frá fundi andófsafla með AGS

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Frásögn af fundi í Seðlabanka Íslands 4. desember 2009.

Fundur með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Franek og Flanagan, með hóp Íslendinga sem sent hafa Strauss-Kahn bréf.

Fundinn sátu fyrir hönd íslenska hópsins: Gunnar Sigurðsson, Heiða B.Heiðarsdóttir, Ásta Hafberg, Einar Már Guðmundsson, Helga Þórðardóttir, Gunnar Skúli Ármannsson, Lilja Mósesdóttir, Elías Pétursson, Ólafur Arnarson.

Fundurinn sem stóð í tæpar tvær klukkustundir var að sumu leyti upplýsandi og þökkum við fulltrúum AGS fyrir hann.

Eftirfarandi grundvallaratriði voru tekin fyrir. Farið var kerfisbundið í gegnum neðantalin atriði á fundinum. Lögð voru fram gögn máli okkar til stuðnings. Reynt var með öllum ráðum að fá fram skýr svör byggð á staðreyndum.

1. Að vöruskiptajöfnuður Íslands verði jákvæður um það bil 160 milljarða á ári næstu tíu árin. Flanagan tókst ekki að sýna fram á með rökum hvernig þetta gæti orðið að veruleika.

2. Að tekjur ríkisins aukist um 50 milljarða á ári næstu árin. Flanagan tókst ekki að sýna fram á með rökum að þetta væri mögulegt.

3. Að landsframleiðsla aukist næstu árin. Flanagan tókst ekki að sýna fram á með rökum að þetta væri mögulegt.

4. Hversu hátt skuldaþol Íslands af vergri landsframleiðsu getur orðið? Flanagan snéri sig út úr því og gaf ekki skýrt svar.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 09 Desember 2009 03:14 ) Lesa meira...
 

Attac-samtökin á Íslandi formlega stofnuð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þann 8. nóvember sl. var haldinn formlegur stofnfundur Attac á Íslandi. Fundurinn var haldinn í JL-húsinu, sal ReykjavíkurAkademíunnar, og sóttu hann um 50 manns. Á fundinum var kjörin stjórn samtakanna. Hana skipa:

Stjórn Attac IcelandStjórn Attac Iceland

Árni Daníel Júlíusson, Bjarni Guðbjörnsson, Einar Már Guðmundsson, Guðjón Guðlaugsson, Salvör Gissurardóttir, Sigurlaug Ragnarsdóttir og Sólveig Jónsdóttir.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 09 Desember 2009 12:29 ) Lesa meira...
 

Norræn Attac-samtök: AGS frá Íslandi!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Yfirlýsing til 61. fundar Norræna ráðsins, Stokkhólmi 27.-29. október 2009.

Norðurlöndin hafa gefið Íslandi lánsloforð undir stjórn AGS. Nú er orðið alveg ljóst að AGS ræður ekki við verkefnið, og aðgerðir sjóðsins gera ekki annað en dýpka kreppuna á Íslandi. Ísland þarfnast tvíhliða lánasamninga, án aðkomu AGS.

Nýfrjálshyggjan hóf sigurgöngu sína fyrir rúmlega þrem áratugum. Hún hefur teygt anga sína um allan heim í krafti hnattvæðingar sinnar og hefur verið alls ráðandi það sem af er þessari öld.  Alfrjálsir fjármálamarkaðir voru drifkraftur þessarar útþenslu og hagvöxtur hennar byggði á takmarkalausri skuldsetningu einstaklinga og fyrirtækja vegna offramboðs á lánsfé. Kerfi þetta náði endimörkum sínum í hrunadansi banka og fjármálastofnana á árunum 2007 og 2008.

Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Desember 2009 06:33 ) Lesa meira...
 

AGS harðlega gagnrýnt fyrir kreppudýpkandi aðgerðir

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ný skýrsla segir að ráðstafanir AGS hafi falið í sér aðgerðir sem gætu gert kreppuna verri í 31 af 41 landi sem kannað var.

Skjal frá Center for Economic and Policy Research (Miðstöð fyrir rannsóknir á efnahags- og stjórnmálum) í Washington leiðir í ljós að 31 af 41 landi sem AGS hefur haft afskipti af hefur verið þvingað til að beita kreppudýpkandi („pro-cyclical“) hagstjórnaraðgerðum. Slíkar aðgerðir hafa þau áhrif í núverandi kreppu að auka á dýpt kreppunnar og gera hana verri. Þær aðgerðir sem fjallað er um í skjalinu og teljast kreppudýpkandi eru annað hvort kreppudýpkandi fjármála- eða gjaldeyrisaðgerðir (aðallega vaxtaákvarðanir og ákvarðanir um gengi gjaldmiðla).

Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Desember 2009 06:41 ) Lesa meira...
 

Sameiginleg yfirlýsing Evrópudeilda Attac um fjármálakreppuna og lýðræðislega valkosti

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú er lag: kveðjum hagkerfi spilavítisins!

Sameiginleg yfirlýsing Evrópudeilda Attac um fjármálakreppuna og lýðræðislega valkosti.

„Afvopnum markaðina!“


Við stofnun Attac 1998 reis þessi krafa með fjármálahrunið í Asíu að bakgrunni. Síðan þá höfum við upplifað fleiri kreppur af völdum fjármálamarkaðanna: í Rússlandi, Brasilíu, Tyrklandi, Argentínu, „nýja-hagkerfis“bólan sem sprakk 2001.

Í dag eru auðugu löndin stödd í miðju kreppu sem er sú alvarlegasta síðan Kreppan mikla 1929. Hrunið á Wall Street í september 2008 markar endalok tímaskeiðs: kerfi fjármagnskapítalismans, sem knúið var áfram af sókninni í hámarksgróða, hrundi. Það eyddi sjálfu sér með eigin mótsetningum. Og nú ná eftirköstin til raunhagkerfisins. Samdráttur er hafinn í Bandaríkjunum og Evrópusambandið fylgir fast á eftir. Að lokum mun heimshagkerfið allt líða fyrir afleiðingarnar.

Samdrátturinn í efnahagslífinu mun leiða til enn meira atvinnuleysis og ójafnræðis. Aukinn þrýstingur verður settur á launafólk um að það samþykki meiri „sveigjanleika á vinnumarkaði“, lækkuð laun og skerta almannaþjónustu. Minnkandi eftirspurn (eftir vörum og þjónustu) frá ríku löndunum hefur síðan áhrif á viðkvæm hagkerfi þróunarlandanna og eykur á fátæktina. Aldamótamarkmiðin, t.d. markmiðin um sjálfbæra hnattræna þróun sem virðir félagsleg skilyrði og verndun umhverfisins, lenda utan seilingar.

Fjármálakreppa og samdráttur fer saman við miklar sviptingar í olíu- og matvælaverði, sem hefur valdið alvarlegum samfélagskreppum og hunguruppreisnum í suðlægum löndum. Margar ástæður eru fyrir breytingunum á hráefna- og matvælaverði. En, enn og aftur, er ástæðu óstöðuleikans í verðlagsmálum, sem og? ástæðunnar fyrir hinum mörgu fjármálakreppnum, að leita í spákaupmennsku fjárfestingasjóða og annarra stofnanafjárfesta.
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 26 Júlí 2009 13:10 ) Lesa meira...
 


Síða 1 af 3

Fréttaskot

Til allra félaga í Attac samtökunum á Íslandi!

Miðvikudaginn 17. febrúar nk.verður haldinn félagsfundur hjá Attac-samtökunum á Íslandi.
Fundurinn verður haldinn í JL-húsinu, sal hjá Reykjavíkur Akademíunni við hringbraut- 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20.00. Allir eru velkomnir.

Dagskrá fundarins: