Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home

Fréttatilkynning frá grasrótinni, 4 mars 2010.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú hafa nokkrir grasrótarhópar ákveðið að standa fyrir kröfugöngu frá Hlemmi
laugardaginn 6. mars kl 14. Gengið verður niður Laugarveginn og að lokinni
göngu verður haldinn útifundur á Austurvelli kl. 15.
Ræðumenn verða Andrés Magnússon læknir og Júlíus Valdimarsson húmanisti. Á
fundinum verður Alþingi götunnar stofnað. Magnús Þór Sigmundsson mun syngja.
Hljómsveitin Stjörnuryk mun flytja lag.

Helstu áhersluatriði Alþingis götunnar eru:
Leiðrétting höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar, fyrningu lána við þrot,
jöfnun ábyrgðar og að fjárglæframenn Íslands séu hvorki stikkfrí né
endureistir, AGS úr landi, manngildið ofar fjármagni, aukin völd til
almennings, bættur neytendaréttur.  

Trommusláttur og lúðrablástur mun fylgja með niður Laugaveginn. Mælst er til
þess að göngumenn taki með sér potta, pönnur, flautur eða annað sem getur
framkallað hóflegan hávaða. Takið með kröfuspjöld.
Gerum næsta laugardag að sögulegum degi. Fjölmennum við formlega stofnun
Alþingis götunnar. Gefum skýr skilaboð til umheimsins, lýðræðið er númer eitt,
valdið er fólksins.
Gerum Alþingi götunnar að stórviðburði. Ekki láta þig vanta. Tölum einum rómi
með samtökunum okkar. Látum það ekki fara neitt á milli mála hver vilji okkar
er. Kjósum með fótunum í göngunni niður Laugaveg.
Hagsmunasamtök heimilanna,
Nýtt Ísland,
Attac samtökin á íslandi,
Siðbót,
Húmanistafélagið,
Rauður vettvangur,
Vaktin,
Aðgerðahópur Háttvirtra Öryrkja.

Fréttaskot