Norræn Attac-samtök: AGS frá Íslandi!
Þriðjudagur, 27 Október 2009 10:35
Vefstjóri
Yfirlýsing til 61. fundar Norræna ráðsins, Stokkhólmi 27.-29. október 2009.
Norðurlöndin hafa gefið Íslandi lánsloforð undir stjórn AGS. Nú er orðið alveg ljóst að AGS ræður ekki við verkefnið, og aðgerðir sjóðsins gera ekki annað en dýpka kreppuna á Íslandi. Ísland þarfnast tvíhliða lánasamninga, án aðkomu AGS.
Nýfrjálshyggjan hóf sigurgöngu sína fyrir rúmlega þrem áratugum. Hún hefur teygt anga sína um allan heim í krafti hnattvæðingar sinnar og hefur verið alls ráðandi það sem af er þessari öld. Alfrjálsir fjármálamarkaðir voru drifkraftur þessarar útþenslu og hagvöxtur hennar byggði á takmarkalausri skuldsetningu einstaklinga og fyrirtækja vegna offramboðs á lánsfé. Kerfi þetta náði endimörkum sínum í hrunadansi banka og fjármálastofnana á árunum 2007 og 2008.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Desember 2009 06:33 )
Lesa meira...
|
AGS harðlega gagnrýnt fyrir kreppudýpkandi aðgerðir
Þriðjudagur, 06 Október 2009 09:29
Vefstjóri
Ný skýrsla segir að ráðstafanir AGS hafi falið í sér aðgerðir sem gætu gert kreppuna verri í 31 af 41 landi sem kannað var.
Skjal frá Center for Economic and Policy Research (Miðstöð fyrir rannsóknir á efnahags- og stjórnmálum) í Washington leiðir í ljós að 31 af 41 landi sem AGS hefur haft afskipti af hefur verið þvingað til að beita kreppudýpkandi („pro-cyclical“) hagstjórnaraðgerðum. Slíkar aðgerðir hafa þau áhrif í núverandi kreppu að auka á dýpt kreppunnar og gera hana verri. Þær aðgerðir sem fjallað er um í skjalinu og teljast kreppudýpkandi eru annað hvort kreppudýpkandi fjármála- eða gjaldeyrisaðgerðir (aðallega vaxtaákvarðanir og ákvarðanir um gengi gjaldmiðla).
Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Desember 2009 06:41 )
Lesa meira...
Lettland í kreppu eftir að nýfrjálshyggjukerfi Thatchers hrynur
Fimmtudagur, 06 Ágúst 2009 22:15
F. William Engdahl
Heimskreppan í fjármálum og efnahagsmálum hefur lent harðar á litla Eystrasaltsríkinu Lettlandi en nokkru öðru landi nema ef til vill Íslandi. Landið gerði tilraun til að ganga inn í Myntbandalag Evrópu, og hluti af þeirri tilraun var að binda gengi gjaldmiðils landsins, Lats, við Evruna. Afleiðingarnar urðu þær að slæm staða varð mun verri en hefði annars verið. Þróun mála í Lettlandi mun hafa bein áhrif á örlög marga ríkja í austurhluta Evrópu. Hún markar dauða hinnar róttæku tilraunar með thatcherisma í Austur-Evrópu.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Desember 2009 06:42 )
Lesa meira...
|
Vandinn við Icesave
Miðvikudagur, 12 Ágúst 2009 21:16
Árni Daníel Júlíusson
Yfirlýsingar bandaríska lögfræðingsins Lee Buchheit um samninga Íslendinga við Breta og Hollendinga um Icesave-málið hafa ekki opnað augu þess hluta ríkisstjórnarinnar sem vill láta Alþingi skrifa upp á samninginn. Þar fer fremstur í flokki fjármálaráðherrann sem virðist algerlega ákveðinn í að eyðileggja pólitískan feril sinn. Vera má að hann eigi eftir einhver ár í ráðherrastól, en þar mun hann sitja í skugga þessa máls, hvernig sem það fer. Steingrímur J. Sigfússon hefur í 20 ár eða svo sagst vera sósíalisti eða vinstri maður, og vel má vera að það finnist honum sjálfur hann vera, en framganga hans í Icesave málinu er eins langt frá því að vera vinstrimennska og nokkur möguleiki er. Steingrímur gengur í því máli erinda auðvaldsins og hagar sér eins og samviskulaus innheimtulögfræðingur sem er staðráðinn í að bera fátæku ekkjuna út úr húsi hennar.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Desember 2009 06:40 )
Lesa meira...
Um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og íslensk stjórnvöld
Miðvikudagur, 05 Ágúst 2009 12:17
Árni Daníel Júlíusson
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er þekktur fyrir harkalegt framferði í efnahagsmálum. Fái hann tækifæri til þess að stýra opinberum fjárstraumum ríkja beitir hann aðferðum sem leiða til niðurskurðar í velferðarkerfi, einkavæðingu opinberrar þjónustu og annars slíks. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart – ráðleggingar sjóðsins, jafnvel til vestrænna ríkja, ganga á hverju ári út á það að skera þurfi niður í opinberum rekstri og einkavæða banka, fjölmiðla, heilbrigðiskerfi og menntakerfi, eða það af þessum fyrirbærum sem enn kynni að vera í eigu ríkisins. Þetta er raunar opinber stefna flestra alþjóðlegra fjármálastofnana, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, OECD o.fl. Ríki eins og Noregur og Ísland hafa getað hundsað þessar „ráðleggingar“ í krafti þess að það hefur verið byggt upp öflugt velferðarkerfi á vegum hins opinbera, sem þessar þjóðir hafa haft efni á að greiða fyrir úr eigin vasa.
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 05 Ágúst 2009 12:28 )
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|
Síða 10 af 12 |