Fjárfestingasjóður í anda nýfrjálshyggju
Á stjórnarfundi Attac á Íslandi sem haldinn var 8. desember var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 10 Desember 2009 14:28 )
Attac á Íslandi lýsir furðu sinni á því hvernig Landssamtök lífeyrissjóða standa nú að stofnun fjárfestingarsjóðs og hyggjast ráðskast með 30 milljarða af sparifé landsmanna í áhættufjárfestingar í anda nýfrjálshyggju án þess að gegnsæi og upplýst samfélagsumræða sé um hvernig standa eigi að þeim fjárfestingum. Þá vekur furðu að í stjórn hins nýja fjárfestingarsjóðs lífeyrissjóðanna er valið fólk sem tengist hinum föllnu útrásarfyrirtækjum s.s. Guðfinna S. Bjarnadóttir sem bæði sat í stjórn Baugs og FL group. Attac telur brýnt að endurreisa þau samfélög sem rústað hefur verið fyrir tilstilli óheftrar markaðshyggju. Til þess verður að setja bönd á fjármálastarfsemi, skattleggja hana í þágu félagslegs jafnréttis og setja verður samfélögum ný markmið í anda lýðræðis- og velferðarsamfélaga, þar sem manngildi og gegnsæi verði í hávegum höfð. |
||
|
||
|
|
||
| Síða 9 af 12 |
| "The Reykjavik nine" Vinteren 2008/09 demonstrerte tusenvis utenfor Alltinget i Reykjavik under det som har blitt kalt kasserollerevolusjonen. De protesterte mot nepotismen og korrupsjonen som førte til de alvorlige økonomiske konsekvensene for Islands befolkning. Den 8. desember 2008 ønsket et trettitalls av disse demonstrantene å komme inn til galleriet på Alltinget. Demonstrantene ville være tilstede i Alltinget for å observere og markere tilstedeværelse, og var selvfølgelig ubevæpnet. |