Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Stop the financial casino!

Skattlagning fjármagnsflutninga

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
ATTAC félögin hafa yfir lengri tíma bent á tvöföld áhrif gjalds á viðskipti með fjármagn, þótt það væri ekki hærra en 0.1%. Annars vegar myndi gjaldið afla ríkinu tekna sem væru kærkomnar nú þegar það þarf að gjalda fyrir "skuldir óreiðumanna", eins og nafntogaður embættismaður komst að orði í kjölfar bankakreppunnar á Íslandi. Hinsvegar myndi gjald sem þetta koma í veg fyrir að stór hluti skammtímaviðskipta með erlenda mynt borgaði sig og því stýra viðskiptunum á aðrar brautir. 

Fjármálamarkaðir og þjóðarhagur

"Í ófyrirsjáanlegan tíma munum við þurfa að búa við þjóðlega gjaldmiðla og laga okkur að þeim. Stórkostlegar upphæðir fjár eru lagðar til reiðu að jafna út þann mun sem er á vöxtum í einstökum löndum og notaðar til að stunda spákaup með gjaldmiðla og gengi þeirra. Hér eins og á svo mörgum sviðum hefur tæknin hlaupið af sér þær stofnanir sem samfélagið hefur byggt upp í kringum fjármál, stjórnmál og velferð almennings." (James Tobin, A Currency Transactions Tax, Why and How, Open economies review, 7: 493 - 499, 1996, http://cowles.econ.yale.edu/P/cp/p09a/p0939.pdf Sótt 27.12.2009)

Síðast uppfært ( Mánudagur, 28 Desember 2009 23:15 ) Lesa meira...
 

Veröldin vill samning sem heldur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þriðjudaginn 15. desember, klukkan 17.30, mun Íslandsdeild Attac-samtakanna, í samvinnu við Náttúruverndarsamtök Íslands og netsamfélagið Avaaz.org, standa fyrir kertaljósavöku á Lækjartorgi, í Reykjavík. Tilefnið er loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem þjóðarleiðtogar heimsins munu freista þess að komast að samkomulagi um aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum af mannavöldum. Samskonar kertaljósavökur hafa verið skipulagðar um allan heim, og hafa félagasamtök og einstaklingar í meira en 130 löndum hlýtt kallinu. Krafa okkar er skýr: Sanngjarnt, metnaðarfullt, lagalega bindandi samkomulag verður að nást, veröldin krefst samnings sem heldur!

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 15 Desember 2009 06:22 ) Lesa meira...
 

Heimurinn krefst samnings sem heldur - THE WORLD WANTS A REAL DEAL

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
AVAAZ.ORG
Attac.is
10. desember, 2009. 
***Fréttatilkynning*** 

Heimurinn krefst samnings sem heldur - THE WORLD WANTS A REAL DEAL: 
 
ATH. ATH. ATH.
FUNDINUM ER FRESTAÐ FRAM Á ÞRIÐJUDAG VEGNA VEÐURS.
 
Reykjavík tekur þátt í kertaljósavöku sem nær um alla heimsbyggðina.

Þann 12. desember mun fólk um heim allan taka þátt í meira en 2000 kertaljósavökum. Krafan er sú að bindandi samkomulag náist á Loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn.
Attac á Íslandi skipuleggur vökuna í Reykjavík. Komið verður saman á Lækjartorgi kl: 17.30, og kveikt á kertum. Ólafur Páll Jónsson flytur ávarp, lesin verða skilaboð til samningsaðila í Kaupmannahöfn, og dúettinn Piknikk leikur nokkur lög.
Baráttufólk og sérfræðingar í loftslagsmálum fullyrða að raunverulegur samningur um samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda verði að innihalda eftirfarandi atriði: 
  1. Sanngirni – Tryggja verður 200 milljarða bandaríkjadollara til að fjármagna aðgerðir í fátækum ríkjum til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. 
  2. Metnað - Stefnt verði að því að útblástur koltvísýrings nái hámarki eigi síðar en árið 2015 og að styrkur hans í andrúmsloftinu verði þegar fram í sækir ekki meiri en 350 ppm (er nú 384 ppm). Niðurstöður vísindarannsókna sýna að haldi styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu áfram að aukast verði ómögulegt að stöðva hraðar loftslagsbreytingar, bráðnun Grænlandsjökuls og varanlegar breytingar á vistkerfi jarðar. 
  3. Lagalega bindandi – samningur verður að binda ríki heims að þjóðarrétti. 
Nóbelsverðlaunahafinn Desmond Tutu og Mary Robinson, fyrrverandi mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna munu leiða kertaljósavöku fyrir utan Bella Center í Kaupmannahöfn þar sem samningar fara fram. 
Skilaboðin til þjóðarleiðtoga héðan frá Reykjavík eru: „Við krefjumst samnings sem tryggir framtíð jarðar”, sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, meðlimur Attac á Íslandi og félagi í Avaaz.org. netsamfélaginu sem skipuleggur atburðina um heim allan. 
„Við krefjumst samkomulags sem er nógu metnaðarfullt til að tryggja að veröldin sé byggileg fyrir alla. Samningurinn verður að vera sanngjarn gagnvart fátækustu löndunum. Íbúar þeirra orsökuðu ekki loftlagsbreytingarnar en afleiðingarnar munu þó bitna mest á þeim. Og við krefjumst þess að samningurinn sé lagalega bindandi, með skilgreind losunarmörk og ártöl.“
Attac á Íslandi skipuleggur kertaljósavökuna í Reykjavík, í samstarfi við Náttúruverndarsamtök Íslands. Hún verður á Lækjartorgi, kl: 17.30, 12. desember. Allir eru velkomnir. 

Sólveig A. Jónsdóttir
6955345
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  
Síðast uppfært ( Laugardagur, 12 Desember 2009 16:40 )
 

Hin forherta heimska

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ávarp 12. desember 2009
 
Íbúar jarðar standa frammi fyrir þeirri ógn að loftslag jarðarinnar er að breytast og mun halda áfram að breytast og ef ekki verður gripið hressilega í taumana þá mun það valda meiri hörmungum en við höfum áður séð. Og höfum við þó séð ýmislegt. Fólk mun ekki bara missa vinnuna og kannski húsin sín, eins og við þekkjum úr okkar stundlegu kreppu, það mun missa sjálf heimkynnin. Kannski sökkva þau í sæ, kannski breytast þau í eyðimörk, kannski verða þau vígvöllur.
 
Hver skyldi staða okkar Íslendinga vera andspænis þessari ógn? Það er sagt að hér sé kreppa, að við þurfum að hugsa um að koma okkur upp úr henni og að þess vegna höfum við ekki efni á að takmarka möguleika okkar á að losa gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið. Það heitir hjá sumum: „Sjálfsagður réttur okkar til að nýta þær náttúruauðlindir sem við höfum“. Vissulega er satt að hér er einhverskonar kreppa. Og það er líka satt að við þurfum að hugsa um að koma okkur upp úr henni. En af þessu skulum við ekki draga þá ályktun að við höfum ekki efni á að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda. Af þessu skulum við ekki einu sinni draga þá ályktun að það sé eitthvert val um það, hvort við drögum úr losun eða ekki. Og við skulum ekki kalla það, sem vegur að tilverugrundvelli annarra, sjálfsagðan rétt okkar.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 23 Desember 2009 11:46 ) Lesa meira...
 

AGS: Risinn upp frá dauðum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Kreppan hefur leikið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS). Fyrir réttu ári síðan var hann stofnun í gjörgæslu. Fæst þróunarlöndin virtu hann viðlits. Skopast  var að getuleysi hans við að sjá fyrir kreppurnar í nýmarkaðslöndunum og svörum hans við þessum kreppum sem oftast juku á vandann. Hann var jafnvel kallaður inn á teppið af eftirlitsaðilum vegna lélegrar stýringar á sínum eigin sjóðum!
Stefna hans og fyrirmæli var álitin ósveigjanleg og hugmyndasnauð, sömu nálguninni var beitt á gjörólík hagkerfi og aðstæður. Auk þess var nálgun hans úrelt, jafnvel fræðilega séð, byggði á efnahagslíkönum  og grundvallarreglum sem hefur verið hafnað með margbrotnari greiningum framsækinna hagfræðinga jafnt sem með framþróun í nýklassískum kenningum.
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 09 Desember 2009 21:36 ) Lesa meira...
 


Síða 8 af 12

Fréttaskot

Fundur Attac um Magma-málið þann 28. júlí tókst mjög vel og var fjölsóttur, þótt hann væri haldinn í miðjum sumarfríum. Ráðherrar skrópuðu reyndar, og heyrst hefur að það hafi verið af því að þeir þorðu ekki að mæta á fundinn. Í framhaldi af fundinum stóð Attac fyrir að safna undirskriftum undir áskorun orkuauðlinda um Magma málið á Gay Pride. Viðbrögð fólks voru mjög góð og mörg hundruð manns skrifuðu undir áskorunina.

            Á menningarnótt heldur Attac á Íslandi áfram að berjast gegn einkavæðingu íslenskra orkuauðlinda af miklum krafti, og nú með menningardagskrá sem stendur allan daginn og fram á kvöld. Dagskráin verður fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Fjöldinn allur af úrvals rithöfundum, tónlistarfólki, öðrum listamönnum o.fl. munu flytja fjölbreytt menningarefni allan daginn, og kórar syngja. Fólki gefst líka kostur á að undirrita áskorun orkuauðlinda.is allan daginn. Dagskráin verður undir yfirskriftinni „Ísland er ekki til sölu“, sem rímar skemmtilega við eitt helsta slagorð hinna alþjóðlegu Attac samtaka, „The world is not for sale“.

            Á fimmtudagskvöld verður sjálfboðaliðafundur í Húsinu til að undirbúa framkvæmd dagskrárinnar. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að fjölmenna í Húsið og taka þátt í undirbúningnum. Ísland er ekki til sölu!