Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Stop the financial casino!

Alþingi götunnar stofnað

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Yfirlýsing frá Alþingi götunnar

Við erum hér saman komin í dag til að stofna Alþingi götunnar.

Hagsmunir fjármagnseigenda og innanbúðarmanna hafa ráðið för á Íslandi eftir hrun eins og fyrir hrun. Hagsmunir almennings hafa ekki hljómgrunn hjá stjórnvöldum nema í aðdragenda kosninga.

Kjör aldraðra, öryrkja og fatlaðra voru skorin niður strax. Skuldsetning heimila og fyrirtækja er látin vaxa óáreitt, með gjaldþrotum og nauðungaruppboðum. Launakjör skorin niður, uppsagnir og skattahækkanir. Allt kunnulegir fylgifiskar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þegar kemur að kreppulausnum.

Þeir sem djarfast spiluðu á útrásartímanum, halda gróðanum en tapið er lagt á herðar almennings.

Stjórnlagaþing, lýðræðið, rödd og vald almennings er haft að háðung og spotti.

Hingað og ekki lengra, okkur er nóg boðið. Öll helstu kosningaloforðin svikin. Hvers vegna erum við gleymd daginn eftir kjördag? Erum við engin ógn við notalega tilveru ykkar í glerhúsinu? Baksvipur ykkar finnst okkur kuldalegur.

Við fylkjum liði með almenningi sem flykkist út á göturnar víða um heim, í Grikklandi, í Lettlandi og höfnum því að gróði nýfrjálshyggjunnar sé einkavæddur en tapið þjóðnýtt.

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 07 Mars 2010 22:02 ) Lesa meira...
 

Jubilee Debt Campaign: Iceland voters should demand new debt system

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Iceland voters should demand new debt system
Campaign group calls for arbitration over Icesave debts; new international system would help fight poverty  
 
Jubilee Debt Campaign (1) has called for an arbitration system to be established to settle the Icesave debt row, as Iceland’s voters go to the polls on whether to accept British and Dutch repayment terms tomorrow (2). They believe a ‘no’ vote in Iceland should prompt a radical shake-up in the way international debt is handled, which would mean that debts are not used as an justification for creditors forcing unjust measures onto debtor countries.
 
Campaigners believe that a new way of dealing with debt would not only help ensure stability in Europe, but would transform the potential of developing countries currently burdened by unjust and unpayable debts and assist their fight against poverty.
 
A ‘no’ vote is expected in tomorrow’s referendum, which could lead to the financial isolation of Iceland, for instance risking loans from the International Monetary Fund (3) as well as Iceland’s financial rating. Campaigners argue that this is a clear example of how the international lending system tends to turn a deficit into a crisis by laying the full responsibility for debt on the debtor. Together with the absence of insolvency procedures for sovereign states, indebted countries have no protection from unpayable or unjust debts and can be forced to repay irresponsible loans, at high rates of interest, even if basic services to its citizens are neglected.  
 
Síðast uppfært ( Laugardagur, 06 Mars 2010 20:48 ) Lesa meira...
 

Ræða á ráðstefnu ATTAC í Noregi í febrúar 2008

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Ísland þar sem eru einungis 320 þúsund íbúar, sér nú fram á að þurfa að axla margra milljarða evra skuldabyrgði sem langstærstur hluti þjóðarinnar ber nákvæmlega enga ábyrgð á og ræður alls ekki við að greiða.” Þessi staða minnir á orð skáldsins Sigfúsar Daðasonar í ljóði úr bókinni Hendur og orð frá árinu 1959, en þar segir: “Sjálfgerðir fjötrar eru traustastir fjötra.” 
 
Norðurlöndin hafa samþykkt að leggja íslendingum lið í endurreisnarstarfinu undir handleiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn með lánsloforðum. Nú þegar þjóðinni er orðið ljóst að Sjóðurinn veldur ekki verkefninu og vaxandi fylgi er við  að segja upp samningnum við hann og finna sína eigin leið til endurreisnar í anda norrænna velferðarríkja sem er yfirlýst stefnumið ríkisstjórnarinnar og í sátt við umhverfið í anda sjálfbærrar þróunar ættu vinveitt norrænu ríkin að fylgja því eftir og semja beint við Ísland um lánafyrirgreiðslur í samræmi við þarfir landsmanna en ekki þarfir alþjóðlegra fjármálamarkaða. Til að losna undan þrýstingi og hótunum þeirra þarfnast Íslendingar allra tiltækra bandamanna, vinveittra þjóða, hreyfinga og einstaklinga.

 Ágætu Norðmenn, þingmenn, ráðstefnugestir og almenningur.

Mér finnst viðeigandi að hefja þetta erindi með ívitnun í ykkar eigin landsmann, Evu Joly, sem blásið hefur von í brjóst margra Íslendinga, þeirri einföldu von að til sé réttlæti, en hún segir:

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 16 Febrúar 2010 17:18 ) Lesa meira...
 

Ísland, AGS og IceSave.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

IMF LogoSkuldir Íslands í dag eru um 320% af VLF. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagði fyrir ári, þegar skuldirnar voru 240%, að það væri hámarkið. Núna höfum við farið lang um fram það í skuldum en samt heldur AGS því fram að við getum staðið í skilum. Reyndar bendir AGS á tvennt. Í fyrsta lagi verði Ísland að fylgja áætlun AGS fyrir Ísland mjög nákvæmlega. Hitt sem AGS tekur fram er að ef fleiri skuldir finnast eða gamlar skuldir aukast þá verði Ísland sennilega að selja einhverjar auðlindir sínar upp í skuldir.

Hversu trúverðug er áætlun AGS fyrir Ísland. Sérstaklega með hliðsjón af sögu sjóðsins.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 25 Febrúar 2010 15:21 ) Lesa meira...
 

Noregsferð og Tax Justice Network

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Til allra félaga í Attac samtökunum á Íslandi!

Miðvikudaginn 17. febrúar nk.verður haldinn félagsfundur hjá Attac-samtökunum á Íslandi.
Fundurinn verður haldinn í JL-húsinu, sal hjá Reykjavíkur Akademíunni við hringbraut- 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20.00. Allir eru velkomnir.

Dagskrá fundarins:

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 16 Febrúar 2010 17:09 ) Lesa meira...
 


Síða 6 af 12

Fréttaskot

27.7.2010

 

Stjórnarflokkarnir eru sammála um mikilvægi þess að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum í samræmi við ákvæði samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og sérstaka yfirlýsingu hennar um orkumál frá 18. maí 2010 (sjá fylgiskjal 2) þar sem m.a. kemur fram að ekki verði á starfstíma ríkisstjórnarinnar hróflað við eignarhaldi ríkisins á orkufyrirtækjum og unnið að því að ákvæði um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum verði tekið upp í stjórnarskrá. Ríkisstjórnin einsetur sér að stöðva það einkavæðingarferli á orkufyrirtækjum landsins sem hafið var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og tryggja samfélagslegt forræði á auðlindum og orkufyrirtækjum. Í samræmi við þessa markmiðssetningu hefur ríkisstjórnin ákveðið að sérstaklega skuli rannsaka tildrög þess að HS Orka sé komin í meirihlutaeigu einkaaðila með það fyrir augum að hægt sé að vinda ofan af þeirri niðurstöðu. Í þessu skyni hefur ríkisstjórnin, eftir viðræður við fulltrúa þingflokka sinna, samþykkt eftirfarandi:

1. Forsætisráðherra skipi sérstaka nefnd óháðra sérfræðinga til þess að rannsaka og yfirfara einkavæðingu í orkugeiranum á undanförnum árum. Sérstaklega verði horft til einkavæðingarferlis Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS Orku, og söluferlis einstakra eignarhluta, ekki síst kaupa Magma Energy á eignarhlutum í fyrirtækinu í ljósi vafa um lögmæti þeirra viðskipta. Vinnu nefndarinnar skal hagað með eftirfarandi hætti (sjá nánar í fylgiskjali 1)

    • Lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku í gegnum dótturfélag í Svíþjóð. Niðurstöðum þessa þáttar skal skilað fyrir 15. ágúst nk.
    • Einkavæðingarferli Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS Orku. Niðurstöðum þessa þáttar skal skilað fyrir lok september nk.
    • Starfsumhverfi orkugeirans. Niðurstöðum þessa þáttar skal skilað fyrir lok desember nk.

2. Forsætisráðherra, fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og umhverfisráðherra sem og þingflokkar stjórnarflokkanna tilnefna hver einn fulltrúa í sérstakan starfshóp sem hefji þegar störf og undirbúi lagafrumvarp er tryggi opinbert eignarhald á mikilvægum orkufyrirtækjum og takmarki eignarhald einkaaðila. Meðal annars verði horft til niðurstaðna nefndar ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu í orkugeiranum við mótun löggjafar og hvernig best megi aðlaga núverandi ástand mála nýrri löggjöf. Stefnt skal að framlagningu nýs lagafrumvarps í samræmi við niðurstöðu starfshópsins fyrir lok októbermánaðar 2010. Samhliða munu forsætisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið halda áfram þeirri vinnu sem þar er hafin á grundvelli skýrslu nefndar Karls Axelssonar varðandi gjaldtöku fyrir nýtingu vatnsréttinda í eigu ríkisins og tímalengd samninga ofl. Skal niðurstaða þeirrar vinnu liggja fyrir á sama tíma.

3. Efnahags- og viðskiptaráðherra upplýsir málsaðila um það með bréfi, að á vegum stjórnvalda sé að fara af stað sjálfstæð og óháð rannsókn sem lýtur að lögmæti kaupa Magma sem erlends aðila, málið hafi verið sent til umboðsmanns Alþingis, ríkisstjórnarflokkarnir séu að hefja vinnu sem miði að endurskoðun lagaumhverfis varðandi eignarhald á orkufyrirtækjum, þ.á m. um takmarkanir á eignarhaldi einkaaðila, og málið sé til skoðunar og unnið að stefnumótun á pólitískum vettvangi og kunni allt framangreint að hafa áhrif á framtíðarstöðu opinberra jafnt sem einkaaðila á sviði orkumála. Ríkisstjórnin sé staðráðin í að vinda ofan af einkavæðingu innan orkugeirans og tryggja eftir megni að mikilvægustu orkufyrirtæki landsins séu á forræði opinberra aðila. Ráðherra og ríkisstjórn hafi því ekki tekið endanlega afstöðu til fjárfestingar fyrirtækisins og yfirfari nú framtíðar rekstrar- og lagaumhverfi fyrirtækja í orkugeiranum svo sem að ofan greinir.