Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Stop the financial casino!

Grikkir allra landa sameinist! - Mótmæli til stuðnings Grikkjum verða þann 5. maí kl. 16:00 á Arnarhóli

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Svokölluð aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins við Grikkland er stórkostleg aðför að réttindum verkafólks.

Stórfelldar launalækkarnir, uppsagnir opinberra starfsmanna, skerðing lífeyrisréttinda,  niðurskurður opinberra útgjalda og þyngri skattbyrgðar á hina lægst launuðu er meðal þess sem fyrirhugað er.  Afleiðingin er ógnvænleg lífskjaraskerðing almennings.

Á meðan grískir auðmenn koma eigum sínum í skjól, situr almenningur í súpunni. Engar tillögur hafa verið settar fram af  AGS eða ESB um hvernig hægt er að draga úr alvarlegri misskiptingu tekna og auðs. Engar tillögur hafa verið settar fram um að þeir sem ábyrgðina beri axli hana. Engar tillögur hafa verið settar fram um hvernig koma skal í veg fyrir að nýjar fjármálakreppur dynji á.

Þann 5. maí hefst allsherjarverkfall í Grikklandi. Á næstu dögum verða samstöðumótmæli um alla Evrópu. Krafan er: Segja verður skilið við pilsfaldakapítalisma og hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar. Stöðva verður þjóðnýtingu tapsins og einkavæðingu gróðans. Standa verður vörð um hagsmuni almennings en ekki fjárglæframanna.

Attac á Íslandi mun standa fyrir mótmælum til stuðnings Grikkjum þann 5. maí kl 16:00 á Arnarhóli.

Ræðumenn verða: Sólveig Jónsdóttir formaður Attac og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingkona VG.

Frekari upplýsingar verður að finna á Attac.is og á síðu Attac á Facebook.

 

 

Sýnum samstöðu, krefjumst réttlætis!

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 04 Maí 2010 11:45 )
 

Ræða Sólveigar Jónsdóttur formanns Attac á Íslandi á Austurvelli 24. apríl

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
  Kæru félagar!

Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði lokið sér af í suð-austur Asíu í kjölfar  fjármálakreppunar þar,  stóð vart steinn yfir steini. Tugir miljóna voru án atvinnu,  barnavændi hafði aukist gríðarlega,  og blessuð millistéttin, sem flestir þrá að tilheyra hafði nær þurkast út.  Sumir töluðu um skipulagða eymd, planned misery.

En það veltust ekki allir um í eymd, öðru nær. Stóru fjárfestingarbankarnir, og fjölþjóðleg fyrirtæki voru á risaútsölumarkaði. Okkar gömlu vinir Donald Rumsfeld og Dick Cheney, voru á meðal þeirra sem græddu og grilluðu.

Síðan Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom til Íslands höfum við fengið að heyra að þeir séu hættir að skipuleggja eymd, og beiti sér nú aðallega fyrir betra mannlífi. Þeir hafi lært af mistökunum, Milton Freidman er líka löngu dauður og engin hræddur við hann lengur.

En við þurfum ekki að leita lengi, í bókum eða á netinu, og þá verða staðreyndirnar okkur ljósar:

AGS er fullkomlega ólýðræðisleg stofnun. Samningaviðræður fara fram bak við lugtar dyr: við, kjósendur, borgarar, erum svipt okkar lýðræðislegu réttindum, mannréttindum: að við fáum að vera upplýstir þátttakendur þegar ákvarðamir eru teknar sem varða alla tilveru okkar.  Af þessum sökum er enginn sem gætir að hagsmunum okkar, fólksins, sem grillar kannski stundum, en hefur engin tök á að græða milljarða á braski!

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn  neitar að taka tillit til þarfa minni og fátækari ríkja,

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn neitar að leggja til að gjaldeyrisbrask verði skattlagt,

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn neitar að leggja til að skattaskjól verði bönnuð,

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill ekki takast á við raunverulega vandamálið, sem er:

Nýfrjálshyggjan og hömlulaus vöxtur fjármagnsmarkaða, sem hefur leitt til stjarnfræðilegra fjármagnsflutninga spákaupmanna,  sem hafa það eitt að markmiði að hámarka skammtíma hagnað,  en skeyta engu um velfarnað raunhagkerfisins, hvað þá hagsmuni almennings.

AGS gætir hagsmuna markaðarins og hinna auðugu, hvort við hin sökkvum eða syndum er ekki þeirra vandamál!

Kæru félagar!

Ekki aðeins á Íslandi hefur kasínó kapítalisminn í samvinnu við vanhæf stjórnvöld leitt  efnahagslífið allt í ógöngur:

Í Grikklandi óttast almenningur nú afleiðingar aðkomu AGS,

 92% Grikkja telja að frekari niðurskurður, launalækkanir, aukið atvinnuleysi séu á næsta leyti.

Og hér á Íslandi  hefur önnur endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins loks verið afgreidd.

Og þá kemur meðal annars þetta í ljós:

Ríkisstjórn Íslands mun ekki hjálpa íbúðalánasjóði til að mæta afskriftum skulda!

Ríkisstjórnin ætlar ekki að framlengja frestun á nauðungarsölum!

Frekari úrræði fyrir þá sem eru á drukkna í afborgunarkviksyndinu verða engin!

Og Ríkisstjórnin lofar að borga Icesave, með sanngjörnum vöxtum…

 

Kæru félagar!

Sjaldan er  lýðræðisleikritið lélegra og óskemmtilegra en þegar alþjóðasamfélagið fer af stað með hagsmuni markaðarins dulbúna sem hagsmuni þjóða.

Þá er allt í boði:

Tæmum ríkiskassan, gerum innrás, það er ykkur fyrir bestu. Einræðisherrarnir ykkar voru svo lélegir, kapítalistarnir ykkar svo mikilir asnar, stjórnmálaelítan svo löt,  að það er ekki bara sanngjarnt heldur bráðnauðsynlegt að þið borgið brúsann!

Hér þjösnaðist kapítalisiminn  áfram af svo miklu offorsi og fyrirhyggjuleysi að hann valt um koll…  Og hér varð friðsöm uppreisn. Uppreisnin treysti lýðræðinu og fékk kosningar. Uppreisnin treysti fólki sem sagðist vera  vinstri og grænt. Uppreisnin treysti fólki sem sagðist hafa andúð á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og að Icesave væri svívirða og að ömmur ættu allsekki og aldrei að borða hafragraut í öll mál!

Nú þurfa Vinstri Græn og og sá hópur fólks innan Samfylkingarinnar sem vill jafnrétti og fallegt mannlíf að stíga fram og segja:

‘Kæru kjósendur, fyrirgefiði okkur. Við áttum bara svo bágt með að trúa því að þið vilduð alvöru vinstri stjórn! Við höfum verið leiðinleg og vond!

Við höfum hegðað okkur eins og hver annar Sjálfsæðisflokkur!  En við höfum séð að okkur! Héðan í frá vinnum við fyrir ykkur, ekki Óla í Samskip eða Jón Ásgeir eða Bresk eða Hollensk yfirvöld eða hinn Alþjóðlega fjármálamarkað!

Við ætlum að beygja til vinstri, skarpt til vinstri og svo aftur til vinstri. Hittumst úti á horni og byrjum uppá nýtt.’

Kæru félagar!

Það er prinsippmál að eiga ekki í  viðskiftum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn!

Við kaupum ekki bensín og snakk hjá N1, vegna þess að við höfum megnustu andúð á eigendunum.

Og við eigum ekki viðskifti við stofnun sem hefur á samviskunni fátækt og óhamingju systkina okkar um alla veröld! 

Það er ekki bara einhver sófaradíkalismi, heldur partur af grunngildunum, grundvallarpólisíunni!!

Að lokum langar mig að vitna í tvo af  mínum uppáhalds ameríkönum: Martin Luther King, og kommúnistann Boots Riley:

Fyrst Martin:

Sönn bylting gilda mun fljótlega fá okkur til að efast um sanngirni og réttlæti stefnu þeirrar sem fylgt hefur verið til þessa.

Annars vegar er krafan sú að við séum Miskunsamir Samverjar. En það er aðeins upphafið!

Dag einn verðum við að gera okkur ljóst að sjálf leiðin til Jeríkó verður að breytast, svo að menn og konur séu ekki barin og rænd á ferð sinni um þjóðveg lífsins.

Sönn samkennd er annað og meira en að kasta smáaur til betlara, hún er ekki tilviljunarkennd og yfirborðskennd!

Hún fær okkur til að sjá að sú samfélagsmynd sem býr til betlarann þarfnast endurskipulagningar! Sönn bylting gilda mun brátt stara full óþæginda á hrikalega augljósar andstæður fátæktar og ríkidæmis!

 

Og svo kommúnistinn Boots Riley:

 

Take a look around, be for or against, cause you cant change shit if you ride the fence!

 

Sem á íslensku hljómar einhvernveginn svona:

 

Horfðu í kringum þig, vertu með eða á móti, vegna þess að þú breytir engum andskotanum með afsöðuleysi!

 

Burt með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ekki bara frá Íslandi, heldur frá Haiti, Grikklandi,  og allstaðar þar sem hann gengur erinda auðvaldsins og krefst þess að almenningur borgi skuldir kasínókapítalismanns.

Takk fyrir.

 

Síðast uppfært ( Laugardagur, 24 Apríl 2010 18:53 )
 

Reykjavík protest march and responses to referendum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Video from the protest march in Reykjavík saturday March 6th, 2010 and links on the news of the referendum. Attac Iceland was one of the activist groups arranging the march which ended with meeting downtown on Austurvöllur where Parliament of the Street was founded. 

Direct link to the video:http://www.youtube.com/watch?v=sWt1elrRFog 

Video of the  meeting at Austurvollur  following the march (by Dori Sig)

Here are some links to news of the referendum that made headlines in many major news forces - and many news were with pictures from our march.

Like this picture on BBC and Icelandic main newspaper
http://www.mbl.is/frimg/5/24/524295.jpg

Here are more of the news.

http://edition.cnn.com/2010/BUSINESS/03/07/iceland.bailout.vote/index.html
http://news.bbc.co.uk/2/hi/business/8552971.stm
http://www.nationalpost.com/news/story.html?id=2650103
http://www.dr.dk/Nyheder/Udland/2010/03/06/234343.htm
http://english.aljazeera.net/focus/2010/03/201036194653748308.html
http://www.aftenposten.no/okonomi/utland/article3552861.ece

A great deal of discussion many places, f.ex. 400 comments on the following Canadian story

http://www.cbc.ca/world/story/2010/03/06/iceland-referendum006.html?ref=rss

 

Síðast uppfært ( Föstudagur, 12 Mars 2010 10:25 ) Lesa meira...
 

Ákæruvaldið gegn skrílnum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þann 8. desember 2008 hugðust þrjátíu manns fara á palla Alþingis þar sem fram fór þingfundur. Án þess að útskýra mál sitt hindruðu þingverðir för fólksins og héldu því föstu í stigaganginum, sem leiðir upp á pallana. Tveir einstaklingar komust þó framhjá, fóru alla leið og hrópuðu á þingheim að „drulla sér út“ úr húsi sem þjónaði ekki tilgangi sínum lengur. Fyrir vikið dró starfandi lögreglumaður Alþingis fólkið út af pöllunum og fleygði því niður stigann. Fljótt fylltist húsið af lögreglumönnum og á endanum voru sjö einstaklingar handteknir; einhverjir inni en aðrir fyrir utan. Dómsmál gegn níu af þeim þrjátíu sem inn í húsið fóru var fyrst þingfest 21. janúar, svo dregið til baka, en þingfest á ný hinn 11. mars. Málaferlin halda áfram í héraðsdómi Reykjavíkur föstudaginn 9. apríl og mun það svo standa yfir næstu vikur eða mánuði. Öll níu eiga yfir höfði sér eins til sextán ára fangelsisvist, verði þau fundin sek fyrir brot á 100. grein almennra hegningarlaga. Þessi grein er skrifuð af þremur hinna ákærðu.

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 11 Apríl 2010 05:56 ) Lesa meira...
 

Fréttatilkynning frá grasrótinni, 4 mars 2010.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú hafa nokkrir grasrótarhópar ákveðið að standa fyrir kröfugöngu frá Hlemmi
laugardaginn 6. mars kl 14. Gengið verður niður Laugarveginn og að lokinni
göngu verður haldinn útifundur á Austurvelli kl. 15.
Ræðumenn verða Andrés Magnússon læknir og Júlíus Valdimarsson húmanisti. Á
fundinum verður Alþingi götunnar stofnað. Magnús Þór Sigmundsson mun syngja.
Hljómsveitin Stjörnuryk mun flytja lag.

Helstu áhersluatriði Alþingis götunnar eru:
Leiðrétting höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar, fyrningu lána við þrot,
jöfnun ábyrgðar og að fjárglæframenn Íslands séu hvorki stikkfrí né
endureistir, AGS úr landi, manngildið ofar fjármagni, aukin völd til
almennings, bættur neytendaréttur.  

Lesa meira...
 


Síða 5 af 12

Fréttaskot

Fundur Attac um Magma-málið þann 28. júlí tókst mjög vel og var fjölsóttur, þótt hann væri haldinn í miðjum sumarfríum. Ráðherrar skrópuðu reyndar, og heyrst hefur að það hafi verið af því að þeir þorðu ekki að mæta á fundinn. Í framhaldi af fundinum stóð Attac fyrir að safna undirskriftum undir áskorun orkuauðlinda um Magma málið á Gay Pride. Viðbrögð fólks voru mjög góð og mörg hundruð manns skrifuðu undir áskorunina.

            Á menningarnótt heldur Attac á Íslandi áfram að berjast gegn einkavæðingu íslenskra orkuauðlinda af miklum krafti, og nú með menningardagskrá sem stendur allan daginn og fram á kvöld. Dagskráin verður fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Fjöldinn allur af úrvals rithöfundum, tónlistarfólki, öðrum listamönnum o.fl. munu flytja fjölbreytt menningarefni allan daginn, og kórar syngja. Fólki gefst líka kostur á að undirrita áskorun orkuauðlinda.is allan daginn. Dagskráin verður undir yfirskriftinni „Ísland er ekki til sölu“, sem rímar skemmtilega við eitt helsta slagorð hinna alþjóðlegu Attac samtaka, „The world is not for sale“.

            Á fimmtudagskvöld verður sjálfboðaliðafundur í Húsinu til að undirbúa framkvæmd dagskrárinnar. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að fjölmenna í Húsið og taka þátt í undirbúningnum. Ísland er ekki til sölu!