Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Stop the financial casino!

Hamfarakapítalisminn er mættur til Evrópu (og Bandaríkin eru næsti áfangastaður hans)

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Eitt verðum við að hafa á hreinu með ástandið í evrulöndunum sem ekki er ljóst ef við reiðum okkur á flesta fréttamiðlanna. Löndin eru ekki í „ógöngum“ vegna of mikillar eyðslu eða vegna þess að þau hafa safnað of miklum opinberum skuldum. Þau standa ekki frammi fyrir „erfiðu vali“ sem neyðir þau til að skera niður eyðslu og hækka skatta af því að efnahagslífið sé veikburða eða í lægð til að „mæta kröfum fjármálamarkaðanna“.

Síðast uppfært ( Mánudagur, 12 Júlí 2010 10:57 ) Lesa meira...
 

Skjaldborg um fjármálafyrirtækin!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ríkisstjórn Jöhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar er ekki aðeins söguleg fyrir þær sakir að vera fyrsta hreina “vinstristjórn” Íslands – heldur líka vegna þess að hún er fyrsta ríkisstjórnin sem kemst til valda hér á landi í kjölfar einhverskonar byltingar. Í “búsáhaldabyltingunni” veturinn 2008-9 reis íslenskur almenningur upp og krafðist réttlætis. Í kjölfar kosninga vorið 2009 komust Vinstrihreyfingin grænt framboð og Samfylkingin til valda vegna loforða um að slá skjaldborg um íslensk heimili, og verja þau ágangi fjármálafyrirtækja.

Ljóst er orðið að “vinstristjórnin” ætlar ekki að standa við gefin loforð. Ríkisstjórnin hefur gripið til ýmissa sértækra aðgerða sem stoppa í eitt og eitt gat – en ekkert bólar á því að markviss skref verði tekin til að skapa réttlátt samfélag.

Það á ekki að reisa skjaldborg um heimilin. Í staðinn hefur ríkisstjórnin ákveðið að henda hagsmunum almennings á ruslahaugana og gera hagsmuni fjármálafyrirtækja að sínum. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leyfa þeim að halda áfram að blóðmjólka almenning. Og í tilraun til að verja óhæfuna er gripið til  orðræðunnar úr Icesave-fíaskóinu: Hér fer allt á versta mögulega veg ef íslenskur almenningur axlar ekki ímyndaða siðferðislega skyldu  og borgar eins og fyrir er lagt. Að baki þessa siðaboðskaps stendur svo Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 11 Júlí 2010 14:26 ) Lesa meira...
 

Gamanleikaranir taka völdin

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þegar leikarar byrja að leika stjórnmálamenn breytast stjórnmálamenn ekki sjálfkrafa í leikara, heldur kemur í ljós að þeir eru líka leikarar. Hlutverkið er bara svo samgróið persónum þeirra að leikurinn er þeim fúlasta alvara. Raunveruleikinn er þeirra svið, og þar ganga þeir um með vald sitt, þó auðvitað sé búningahönnun í gangi, ímyndarvinna og spuni ...

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 15 Júní 2010 23:32 ) Lesa meira...
 

Fyrirlestur færist til

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fyrirlestur Viðars Þorsteinssonar sem átti að vera í fundaröð Attac á Íslandi um einkvæðingu, markaðsvæðingu og hnattvæðingu verður ekki í kvöld. Ný tímasetning verður ákveðin síðar.

 Attac á Íslandi

 

Frá Attac Norge: "The Reykjavik nine"

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
"The Reykjavik nine"
Islandske Attac'ere står tiltalt for fornærmelse av Alltinget.

Vinteren 2008/09 demonstrerte tusenvis utenfor Alltinget i Reykjavik under det som har blitt kalt kasserollerevolusjonen. De protesterte mot nepotismen og korrupsjonen som førte til de alvorlige økonomiske konsekvensene for Islands befolkning. Den 8. desember 2008 ønsket et trettitalls av disse demonstrantene å komme inn til galleriet på Alltinget. Demonstrantene ville være tilstede i Alltinget for å observere og markere tilstedeværelse, og var selvfølgelig ubevæpnet.

"Vi hadde heller ikke håndplakater, eller annet som kunne provosere eller bli brukt som våpen, vi hadde ikke nevene hevet og vi tok ikke i bruk truende ordbruk." Dette forteller Sólveig Jónsdóttir, leder av Attac Island og en av de tiltalte. "Det må ha vært antallet som skremte de ansatte på Alltinget. Når de så hvor mange vi var, gjorde de alt de kunne for å stoppe oss, og dermed nekte oss vår konstitusjonelle rett".

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 06 Júní 2010 17:56 ) Lesa meira...
 


Síða 3 af 12

Fréttaskot

Tax Justice Network (Samtök um réttláta skatta) er hópur fræðimanna og aðgerðasinna sem vinnur að rannsóknum á skattkerfum og að því að benda á misfellur svo sem skattsvik, skattaskjól og alþjóðleg undirboð skatta, oft af hálfu smáríkja. Slík fyrirbæri spilla að áliti samtakanna tilraunum þjóðríkja til að skattleggja þegna sína með réttlátum hætti. Þau valda líka truflunum á markaðshagkerfinu með því að umbuna fjármálastarfsemi óábyrgra fjárfesta og með því að beina fjárfestingum á vafasamar brautir. Orðið réttlæti er haft í nafni samtakanna vegna þess að þeim er umuhugað um að beita skattalagningu á vegum félagslegs réttlætis.