Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Stop the financial casino!

Hugleiðingar vegna yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar 27 júlí 2010 vegna Magma málsins.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Flutt á borgarafundinum í Iðnó 28. júlí 2010

1.     Það væri áhugavert að vita hvers vegna íslenska ríkisstjórnin svaf yfir sig í Magma málinu.

2.     Jóhanna forsætisráðherra mun skipa hóp óháðra sérfræðinga sem mun ákvarða lögmæti sölunnar á HS orku til Magma. Þess vegna spyrjum við borgararnir á þessum fundi, ráðherrana á þessum fundi, hvort salan á HS orku muni verða að raunveruleika ef fyrrnefnd nefnd kemst að þeirri niðurstöðu að salan sé lögleg. Enn fremur, er það mat ríkisstjórnarinnar að hin lagalega óvissa sé það eina sem standi í vegi fyrir því að Magma eignist HS orku? Ef framkvæmdavaldið gat á sínum tíma munstrað alla þjóðina í stríð gegn Saddam Hussein, getur þá ekki sama framkvæmdavald rústað einum pappírspésa? Er ríkisstjórnin viljug til þess að taka af skarið eða er útspilið í gær málamyndagjörningur?

3.     Sérstakur starfshópur á að undirbúa lagafrumvarp fyrir lok október 2010 um eignarhald í orkufyrirtækjum. Það má skilja á yfirlýsingunni frá því í gær að hugmyndafræðin verði leiga á auðlindum gegn vægu gjaldi til eitthvað styttri tíma en nú er mögulegt. Hvað á þá Jóhanna við í Morgunblaðinu í morgun þegar hún segir að henni finnist hæfilegt að einkaaðilar eigi allt að helminginn í orkufyrirtækjunum okkar.

4.     Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill einkavæða auðlindir, í skýrslu sjóðsins frá því í apríl kemur glöggt fram að sjóðurinn telur það nauðsynlegt að auðlindirnar komist í einkaeigu á Íslandi.  Í viljayfirlýsingunni við sjóðinn frá því í apríl er lögð sú skylda á herðar íslenskra stjórnvalda að bera allar ákvarðanir sínar undir sjóðinn, því spyrjum við, hvert er álit sjóðsins á yfirlýsingu íslensku ríkisstjórnarinnar frá því í gær?

5.     Attac samtökin á Íslandi harma þann seinagang sem hefur verið á viðbrögðum íslensku ríkisstjórnarinnar vegna Magma málsins. Við förum þess á leit að fulltrúi almennings fái aðkomu að þeim nefndarstörfum sem framundan eru vegna Magma málsins.

 

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 29 Júlí 2010 21:26 )
 

Attac býður til borgarafundar um Magma og auðlyndamálin

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Miðvikudaginn 28. júlí kl. 20:00 - 22:00 verður haldinn opinn borgarafundur í Iðnó.

Fundarefni: Allar náttúruauðlindir Íslands eiga að vera í almannaeigu og allur arður af þeim á að ganga óskiptur til þjóðarinnar.

Fundarstjóri: Benedikt Erlingsson, leikari.

Frumælendur:

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Attac-samtakanna

Elvira Méndez Pinedo, doktor í Evrópurétti

Björk Sigurgeirsdóttir, viðskiptafræðingur

Jón Þórisson, arkitekt

Gunnar Skúli Ármannsson, svæfingalæknir

Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og Ragnheiði Elínu Árnadóttu, formanni þingflokks sjálfstæðismanna, hefur verið boðið að taka þátt í pallborðsumræðum ásamt frummælendum.

Hvetjum fundargesti til að mæta með tilbúnar og gagnorðar spurningar.

Sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn.

Attac á Íslandi

 

 

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 28 Júlí 2010 14:42 )
 

Attac býður til borgarafundar um Magma

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Attac samtökin á Íslandi boða til opins borgarafundar um Magma-málið. Fundurinn verður haldinn í Iðnó og hefst kl. 20.00 miðvikudagskvöldið 28. júlí. Á fundinum verða framsögumenn og sérfræðingar í pallborði. Ráðherrar sem málið varðar verða einnig boðaðir á fundinn. Allir þeir sem láta sig málið varða eru á Facebook síðu hvattir til að koma á fundinn með fyrirspurnir og athugasemdir.

Attac samtökin á Íslandi voru stofnuð formlega þann 8. nóvember 2009. Upphaflegt stefnumið Attac var aðeins eitt, en það var að krefjast þess að svokallaður Tobin-skattur yrði lagður á gjaldeyrisbrask. Attac vinnur nú að fjölda málefna sem tengjast hnattvæðingu og neikvæðum afleiðingum fjárhagslegrar hnattvæðingar og einkavæðingar, en samtökin líta ekki á sig sem andstæðing hnattvæðingar. Þau gagnrýna hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar sem samtökin líta svo á að stýri efnahagslegri hnattvæðingu.

Attac er skammstöfun og stendur fyrir „Association pour la taxation des transactions financières pour l'aide aux citoyens“ sem er á ensku: Association for the Taxation of Financial Transactions for the Aid of Citizens, ATTAC.

 

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna orku- og auðlindamála

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
27.7.2010

 

Stjórnarflokkarnir eru sammála um mikilvægi þess að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum í samræmi við ákvæði samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og sérstaka yfirlýsingu hennar um orkumál frá 18. maí 2010 (sjá fylgiskjal 2) þar sem m.a. kemur fram að ekki verði á starfstíma ríkisstjórnarinnar hróflað við eignarhaldi ríkisins á orkufyrirtækjum og unnið að því að ákvæði um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum verði tekið upp í stjórnarskrá. Ríkisstjórnin einsetur sér að stöðva það einkavæðingarferli á orkufyrirtækjum landsins sem hafið var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og tryggja samfélagslegt forræði á auðlindum og orkufyrirtækjum. Í samræmi við þessa markmiðssetningu hefur ríkisstjórnin ákveðið að sérstaklega skuli rannsaka tildrög þess að HS Orka sé komin í meirihlutaeigu einkaaðila með það fyrir augum að hægt sé að vinda ofan af þeirri niðurstöðu. Í þessu skyni hefur ríkisstjórnin, eftir viðræður við fulltrúa þingflokka sinna, samþykkt eftirfarandi:

1. Forsætisráðherra skipi sérstaka nefnd óháðra sérfræðinga til þess að rannsaka og yfirfara einkavæðingu í orkugeiranum á undanförnum árum. Sérstaklega verði horft til einkavæðingarferlis Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS Orku, og söluferlis einstakra eignarhluta, ekki síst kaupa Magma Energy á eignarhlutum í fyrirtækinu í ljósi vafa um lögmæti þeirra viðskipta. Vinnu nefndarinnar skal hagað með eftirfarandi hætti (sjá nánar í fylgiskjali 1)

    • Lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku í gegnum dótturfélag í Svíþjóð. Niðurstöðum þessa þáttar skal skilað fyrir 15. ágúst nk.
    • Einkavæðingarferli Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS Orku. Niðurstöðum þessa þáttar skal skilað fyrir lok september nk.
    • Starfsumhverfi orkugeirans. Niðurstöðum þessa þáttar skal skilað fyrir lok desember nk.

2. Forsætisráðherra, fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og umhverfisráðherra sem og þingflokkar stjórnarflokkanna tilnefna hver einn fulltrúa í sérstakan starfshóp sem hefji þegar störf og undirbúi lagafrumvarp er tryggi opinbert eignarhald á mikilvægum orkufyrirtækjum og takmarki eignarhald einkaaðila. Meðal annars verði horft til niðurstaðna nefndar ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu í orkugeiranum við mótun löggjafar og hvernig best megi aðlaga núverandi ástand mála nýrri löggjöf. Stefnt skal að framlagningu nýs lagafrumvarps í samræmi við niðurstöðu starfshópsins fyrir lok októbermánaðar 2010. Samhliða munu forsætisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið halda áfram þeirri vinnu sem þar er hafin á grundvelli skýrslu nefndar Karls Axelssonar varðandi gjaldtöku fyrir nýtingu vatnsréttinda í eigu ríkisins og tímalengd samninga ofl. Skal niðurstaða þeirrar vinnu liggja fyrir á sama tíma.

3. Efnahags- og viðskiptaráðherra upplýsir málsaðila um það með bréfi, að á vegum stjórnvalda sé að fara af stað sjálfstæð og óháð rannsókn sem lýtur að lögmæti kaupa Magma sem erlends aðila, málið hafi verið sent til umboðsmanns Alþingis, ríkisstjórnarflokkarnir séu að hefja vinnu sem miði að endurskoðun lagaumhverfis varðandi eignarhald á orkufyrirtækjum, þ.á m. um takmarkanir á eignarhaldi einkaaðila, og málið sé til skoðunar og unnið að stefnumótun á pólitískum vettvangi og kunni allt framangreint að hafa áhrif á framtíðarstöðu opinberra jafnt sem einkaaðila á sviði orkumála. Ríkisstjórnin sé staðráðin í að vinda ofan af einkavæðingu innan orkugeirans og tryggja eftir megni að mikilvægustu orkufyrirtæki landsins séu á forræði opinberra aðila. Ráðherra og ríkisstjórn hafi því ekki tekið endanlega afstöðu til fjárfestingar fyrirtækisins og yfirfari nú framtíðar rekstrar- og lagaumhverfi fyrirtækja í orkugeiranum svo sem að ofan greinir.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 28 Júlí 2010 08:49 )
 

Hamfarakapítalisminn er mættur til Evrópu (og Bandaríkin eru næsti áfangastaður hans)

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Eitt verðum við að hafa á hreinu með ástandið í evrulöndunum sem ekki er ljóst ef við reiðum okkur á flesta fréttamiðlanna. Löndin eru ekki í „ógöngum“ vegna of mikillar eyðslu eða vegna þess að þau hafa safnað of miklum opinberum skuldum. Þau standa ekki frammi fyrir „erfiðu vali“ sem neyðir þau til að skera niður eyðslu og hækka skatta af því að efnahagslífið sé veikburða eða í lægð til að „mæta kröfum fjármálamarkaðanna“.

Síðast uppfært ( Mánudagur, 12 Júlí 2010 10:57 ) Lesa meira...
 


Síða 1 af 11

Fréttaskot

Til allra félaga í Attac samtökunum á Íslandi!

Miðvikudaginn 17. febrúar nk.verður haldinn félagsfundur hjá Attac-samtökunum á Íslandi.
Fundurinn verður haldinn í JL-húsinu, sal hjá Reykjavíkur Akademíunni við hringbraut- 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20.00. Allir eru velkomnir.

Dagskrá fundarins: